Fjalakötturinn alþjóðlegur veitingastaður í nýbyggðu húsi við Aðalstrætið sem byggt var að fyrirmynd Fjalakattarhússins sögufræga. Gestir fá að upplifa alvöru Reykjavíkurstemmingu fullkomnaða með fyrsta flokks þjónustu og matseðli. Fjalakötturinn býður upp á alþjóðlegt eldhús og fjölbreytni úr úrvals íslensku hráefni. Áhersla er lögð á fagmennsku og gott úrval af vínum. Þar má finna árgangavín sem eru seld á góðu verði. Fjalakötturinn hefur verið sæmdur verðlaunum fyrir vínseðil frá Wine Spectator.
Fagmennskan í fyrirrúmi
Á Fjalakettinum er lögð áhersla á fagmennsku og gott úrval af vínum. Veitingastjóri staðarins leggur metnað sinn í að hafa fyrsta flokks þjónustu í þægilegu umhverfi.
Uppsalir - bar og kaffihús
Uppsalir eru við hlið Fjalakattarins þar sem gestir geta fengið sér minni og léttari rétti, slakað á og notið þess að fá sér drykk fyrir eða eftir matinn í huggulegu umhverfi gamla Aðalstrætis 16.
Opnunartími Fjalakattarins og Uppsala
Fjalakötturinn er opinn frá kl. 18:00 til miðnættis.
Uppsalir eru opnir frá 11:30 og til miðnættis. Um helgar eru Uppsalir opnir frá hádegi til klukkan eitt um nóttina.
Fjalakötturinn er reyklaus staður.
Borðapantanir í síma 514-6060
Það er mikið úrval af léttum réttum í boði á Uppsölum. Upplagt að njóta hádegisverðar í skemmtilegu umhverfi.
Kíktu á matseðilinn.
Glæsilegur og hátíðlegur jóla- og áramótamatseðillinn á Fjalakettinum. Hann kemur skemmtilega á óvart.
Kíktu á seðilinn og pantaðu núna.
Martreiðslumeistarar Fjalakattarins matreiða sex mismunandi girnilega rétti af sérréttarseðli.
Í boði er glas af sérvöldu víni með hverjum rétt.